Agnes Hekla hóf daginn með flottri sýningu

  • 5. ágúst 2011
  • Fréttir
Agnes Hekla hóf daginn með flottri sýningu

Sólin skín í St. Radegund og Íslendingar brosa, enda hófst forkeppni í fjórgangi á flottri sýningu Agnesar Heklu Árnadóttur og Vignis frá Selfossi. Þau nutu sín vel á vellinum, öll sýningin var fumlaus og skemmtileg og hlutu þau 7,07 í lokaeinkunn. 

Arnar Bjarki Sigurðsson og Röskur frá Sunnuhvoli er næstur Íslendinga í braut, hann er skráður næst síðastur í 2. holli, kl. ca. 10.15 á staðartíma.

Þá munu Hekla Katharína og Gautrekur, Hinrik og Sigur, Hulda og Kjuði, Eyjólfur og Ósk og Jóhann og Hnokki sýna hvað í þeim býr í dag.

Forkeppnin mun mun halda áfram í allan dag, fram til kl. 16.30 og má fylgjast með stöðunni hér á heimasíðu FEIF og á lifandi lýsingu frá mótshöldurum hér.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link