Gerum raunhæfar kröfur

  • 21. mars 2020
  • Fréttir

Frami frá Ketilsstöðum er gott dæmi um hest sem orðið hefur að stórbrotnum gæðinga þrátt fyrir að hafa ekki hlotið háa einkunn fjögurra vetra gamall.

Kynbótasýningar hrossa eru hápunktur ræktandans því þær eru mælikvarði á það hversu vel ræktun hvers og eins passar að opinberu ræktunarmarkmiði íslenska hestsins. Hver ræktandi hefur þó sína skoðun á því hverju hann sækist eftir og hafa því „sérvitringar“ oft á tíðum viðhaldið ákveðnum eiginleikum í stofninum sem síðar meir hafa jafnvel þótt verðmætir.

Stemningin á kynbótasýningum er oft magnþrungin því þar er loftið hlaðið eftirvæntingu um það hvernig sýning á viðkomandi grip tekst til og hver útkoman verður. Yfirleitt eru knapar og ræktendur búnir að mynda sér skoðanir á gripnum og gera sér drauma og vonir um ákveðna útkomu. Það getur því verið erfitt að kyngja því þegar sýningin gekk ekki alveg eins vel og á afleggjaranum heima og gripurinn fær ekki þá einkunn sem vonast var eftir.  Auðvelt er þá að leita að sökudólgum og er það oftast sýningavöllurinn eða þá það sem auðveldast er, dómararnir.

Þó svo að hrossið fái ekki einkunnina 8,00 eða hærra í aðaleinkunn er ekki þar með sagt að um slakan grip sé að ræða. Margir eiginleikar koma til mats í kynbótadómi en þeir eru alls 16 og er oft á tíðum um samsetta eiginleika að ræða eins og t.d. háls, herðar og bógar eða þá fegurð í reið sem er heildarmat á útgeislun hestsins á öllum gangtegundum, eins og segir í stigunarkvarða einstaklingsdóma. Hrossaræktendur ættu því að horfa meira til einkunnar í einstökum eiginleikum og nota þær upplýsingar til þess að para saman hryssu og stóðhest. Þá þarf að koma til hugarfarsbreyting hvað varðar yngri hrossin því fjögurra vetra stóðhestur  eða hryssa sem fær ekki háa aðaleinkunn getur orðið stórbrotinn gæðingur með auknum styrk og þjálfun.

Verum sanngjörn gagnvart hrossunum okkar og gerum ekki óraunhæfar kröfur, þá sérstaklega á yngri hrossin. Nýtum okkur frekar þær upplýsingar sem kynbótadómurinn gefur okkur og horfum sérstaklega til þeirra eiginleika sem má bæta með tilheyrandi framförum við þjálfun og ræktun.

 

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link