Viltu keppa á Norðurlandamótinu?

  • 10. apríl 2012
  • Fréttir
Viltu keppa á Norðurlandamótinu?

Norðurlandmót í hestaíþróttum verður haldið dagana 2. -5. ágúst í Eskilstuna í Svíþjóð. Í Eskilstuna eru aðstæður góðar og keppnisvæðið mjög skemmtilegt. 

 
Keppt verður í öllum hefðbundnum greinum hestaíþrótta í tveimur aldurflokkum:
15 – 21 árs (21 árs á árinu) – Unglingar og ungmenni, alls 8.
22 ára og eldri – Fullorðnir, alls 10.
 
Þeir sem hafa áhuga á að keppa fyrir Íslands hönd á mótinu eru vinsamlegast beðnir um að senda inn umsókn.
Í umsókninni þarf að koma fram: Nafn, heimilisfang, sími, aldur og netfang. Einnig þarf að koma fram keppnisreynsla og telja þarf upp helstu afrek á keppnisvellinum.
 
Knapar útvega sér hross fyrir mótið sjálfir, í samráði við liðstjóra, en hægt er að aðstoða ungmenni ef þess gerist þörf.
 
Við hvetjum sem flesta til að sækja um en reynsla af þátttöku á Norðurlandamóti er frábært veganesti fyrir alla hestaíþróttamenn og konur.
 
Umsóknum þarf að skila inn til Landssambands hestamannafélaga í síðasta lagi 21.maí.
 
Bréflega: Landssamband hestamannafélaga, Engjavegur 6, 104 Reykjavík.
Tölvupóstur: [email protected]
Fax: 514 4031.
 
Allar upplýsingar um mótið er hægt að fá á skrifstofu LH í síma 514 4030.
 
Bestu kveðjur,
Landsliðsnefnd LH
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link