Hesta-Bjarni yngri Norðurlandsmeistari

  • 5. apríl 2012
  • Fréttir
Dramatík á lokamóti KS-Deildarinnar

Rósberg Óttarsson:

Lokakvöld Meistardeildar Norðurlands var æsispennandi og segja má að það sem réð úrslitum þetta árið hafi verið fimm sekúndubrot. Mesta baráttan stóð á milli Bjarna Jónassonar sem hafði fyrir lokakvöldið 22 stig og Sölva Sigurðarsonar sem var með einu stigi minna. Sölvi endaði svo einu sæti ofar en Bjarni í fyrri keppnisgrein kvöldsins, slaktaumatölti og voru þeir því hnífjafnir fyrir lokagreinina sem var skeið. Mette Mannseth sem hafnaði í öðru sæti í slaktaumatöltinu átti reyndar smá möguleika á sigri í deildinni ef Bjarni og Sölvi myndu misstíga sig í skeiðinu.

Skeiðkeppnin var mögnuð og Mette Mannseth gaf strax tóninn með Þúsöld frá Hólum er hún rann sprettinn á fimm sekúndum sléttum. Sölvi mætti með Stein frá Bakkakoti en hann lá ekki í fyrri ferð. Bjarni og Hrappur frá Sauðárkróki lágu fyrri ferð og náðu frábærum tíma 5,09 og settu pressu á Sölva fyrir seinni umferðina. Mette bætti sinn tíma í 4,96 og Sölvi jafnaði Bjarna á tímanum 5,09 og spennan í loftinu mikil.

Seinni sprettur Bjarna og Hrapps var magnaður og tíminn 5,04 sem tryggði honum sigur í heildarstigakeppni Meistardeildarinnar með 34 stig en Sölvi kom næstur með 32 stig og Mette þriðja með 29,5 stig. Meiri spennu og dramatík var ekki hægt að hugsa sér og gaman þegar spennan helst fram í síðustu grein eins og gerðist hér í kvöld. Bjarni hlaut fyrir sigurinn í Meistardeildinni 500.000 krónur en Sölvi fékk 250.000 krónur fyrir annað sætið og Mette 150.000 krónur fyrir það þriðja. Það er Kaupfélag Skagfirðinga sem er aðal styrktaraðili deildarinnar.

Úrslit Slaktaumatölt:
Tryggvi Björnsson  Gulltoppur frá Þjóðólfshaga  7.98
Mette Mannseth  Stjörnustæll frá Dalvík  7,38
Þórarinn Eymundsson  Taktur frá Varmalæk  7,38
Sölvi Sigurðarson  Glaður frá Grund  7,0
Bjarni Jónasson  Svala frá Garði  6,83
Mette hafði betur í hlutkesti. Sölvi sigraði B úrslitin.

Bestu tímar í skeiði:
Mette Mannseth  Þúsöld frá Hólum  4,96
Þórarinn Eymundsson  Bragur frá Bjarnastöðum  4,98
Bjarni Jónasson  Hrappur frá Sauðárkróki  5,04
Þorbjörn Hreinn Matthíasson Möttull frá Torfunesi  5,08
Sölvi Sigurðarsson  Steinn frá Bakkakoti  5,09

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link