Hugsun fyrst, þjálfum svo
Silfurverðlaunahafi Meistaradeildarinnar, Jakob Svavar Sigurðsson heldur áfram að segja frá hugmyndum sínum um vetrarþjálfun og uppbyggingu hrossa til sýninga og keppni í 2. tölublaði Eiðfaxa. Þar fer hann yfir þjálfun hverrar gangtegundar og tekur dæmi um vinnuviku með þjálfunarhrossi:
„Ég kenni öllum hrossum sem ég tem að skilja hliðarhvatningu og í gegnum alla þjálfun legg ég mikla áherslu á að jafna misstyrk eins mikið og ég mögulega get, og að gera hrossin eins mikið samspora og mér er mögulegt á þeim tíma sem mér er skaffaður með hvert hross.
„Samspora“ er reyndar hugtak sem mér finnst ég aldrei hafa náð að uppfylla til hlítar með neinn hest og kannski er þetta hugtak bara fjarlægur draumur. Í mínum huga er „samspora hestur (jafn sterkur)“ og að geta riðið hesti „samspora“ sitthvor hluturinn,” segir hann meðal annars í greininni sem nálgast má, eins og áður sagði, í nýútkomnu 2. tölublaði Eiðfaxa.
Hægt er að gerast áskrifandi að í Eiðfaxa rafrænt hér.
Þeir sem kjósa frekar að kaupa blaðið í lausasölu get gert það hér í vefversluninni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH