Sara og Díva þær allra sterkustu-

  • 1. apríl 2012
  • Fréttir
Sara og Díva þær allra sterkustu-

Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum sigruðu ístöltið „Þeir allra sterkustu“ sem fram fór í skautahöllinni í Laugardal í kvöld eftir mikla baráttu við John Kristinn Sigurjónsson og Brynju frá Bakkakoti.

Tuttugu og sjö valinkunnir knapar og gæðingar mættu til leiks á ísinnn í kvöld, allt frá heimsmeisturum til ungra afreksknapa. Forkeppnin var því sannkölluð veisla á að horfa. Hinrik Bragason gaf tóninn strax í fyrsta holli, fékk 8,27 og var öruggur inn í úrslit. Leó Geir Árnason, sem sigraði úrtökumótið á dögunum á Krít frá Miðhjáleigu vakti einnig hylli, hlaut 8,17, sem var fimmta hæsta einkunn forkeppninnar. Eyjólfur Þorsteinsson skaut sér svo inn í úrslit með kraftmikilli sýningu á Háfeta frá Úlfsstöðum. Sara Ástþórsdóttir mætti óvænt með Dívu frá Álfhólum, en hún var áður skráð á Sóllilju frá Álfhólum. Hún sá varla eftir því, Díva var í miklu stuði og hlutu þær hæstu einkunn keppenda í forkeppni.

Heimsbikarmeistarinn Frauke Schenzel kom á stóðhestinum Gaumi frá Dalsholti, sýndi hann af fagmennsku og prýði og hlaut sæti í B-úrslitum.

John Kristinn Sigurjónsson var augljóslega enn í miklu stuði eftir frækinn sigur í fimmgangi Meistaradeildar í gær. Töltmyllan Brynja frá Bakkakoti fór mikinn á ísnum undir John sem dugði í B-úrslitarimmu sem þau sigruðu nokkuð örugglega.

Þau mættu svo aftur eldheit í A-úrslit og úr varð sannkallað einvígi milli þeirra og Söru og Dívu. John og Brynja leiddu eftir hægt tölt, Sara og Díva urðu að sætta sig við 4.-5. sæti þar. Baráttan var mikil í hraðabreytingum þar sem Sara skaut sér upp í annað sæti, en John og Brynja voru enn efst fyrir lokaþátt keppninnar. Þar slóu hins vegar Sara og Díva öðrum við, hlutu einkunnina 9,5 frá þremur dómurum og sigurinn varð þeirra. Sömu lokeinkunn fengu John á Brynju og Eyjólfur á Háfeta sem sýndu stórkostlegt fegurðartölt. Varpa þurfti hlutkesti um sætaröðun og kom silfrið í hönd Johns.

A-úrslit:

  1. Sara Ástþórsdóttir og Díva frá Álfhólum 8,83
  2. John Kristinn Sigurjónsson og Brynja frá Bakkakoti 8,72
  3. Eyjólfur Þorsteinsson og Háfeti frá Úlfsstöðum 8,72
  4. Leó Geir Árnason og Krít frá Miðhjáleigu 8,56
  5. Hinrik Bragason og Smyrill frá Hrísum 8,50
  6. Hulda Gústafsdóttir og Sveigur frá Varmadal 8,39

Úrslit og myndir koma síðar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link