Kynbætur og keppnisandi
Fræðslukvöldið verður haldið í kvöld, 25. nóvember, kl. 20.00 á Mið- Fossum. Erindi flytja Þorvaldur Kristjánsson kynbótadómari og kennari við Lbhí, og Viðar Halldórsson félagsfræðingur.
Þorvaldur Kristjánsson:
Ganghæfni íslenskra hrossa – Áhrif sköpulags og skeiðgens.
· Þorvaldur fjallar um samband byggingar og hæfileika íslenskra hrossa og áhrif skeiðgensins á ganglags hestsins.
Viðar Halldórsson:
Viðhorf og árangur.
· Viðar fjallar um forsendur árangurs einstaklinga og hópa. Sérstaklega verður fjallað um viðhorf einstaklinga sem og áhrif hins félagslega umhverfis.
Allir áhugasamir velkomnir. Aðgangseyrir 1.000 kr. – ATH! ekki posi á staðnum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH