Ungir reiðkennarar opna tamningastöð
Tamningarfólkið og reiðkennararnir Sigvaldi Lárus Guðmundsson og Linda Rún Pétursdóttir hafa opnað tamningastöð að Staðarhúsum í Borgarfirði og er starfsemi hennar í þann mund að hefjast. Hugmyndin af samstarfi þeirra varð til í vor, en þau hafa bæði lokið námi við Háskólann á Hólum og eru félagar í FT.
„Við höfum unnið að því að standsetja stöðina síðan í júlí en nú erum við byrjuð að taka á móti hrossum. Við munum bjóða upp á tamningar, þjálfun og kennslu af öllu tagi. Hér er reiðhöll og aðstaða fyrir 40 hesta á húsi og frábærar reiðleiðir,“ segir Sigvaldi Lárus en Staðarhús eru staðsett í Borgarfirði, í um klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík. „Við tökum hross í frumtamningu, grunnvinnu og meiri þjálfun. Menn geta sótt um einkatíma eða hópkennslu. Við munum í raun laga alla þjálfun og kennslu að því sem fólk vill og biður um,“ segir Sigvaldi Lárus og bendir áhugasömu fólki á að hafa samband við þau Lindu Rún í gegnum síma eða tölvupóst.
Nú þegar hafa Sigvaldi Lárus og Linda Rún tekið við nokkrum hrossum til þjálfunar að Staðarhúsum. „Haustið lítur vel út fyrir okkur, það er talsverður reitingur af hrossum hér nú þegar, mest allt hross sem komin til okkar í frumtamningu. En við eigum þó enn nokkur laus pláss,“ segir Sigvaldi Lárus.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH