Ratleikur á Uppstigningardag
Sótafélagar láta ekki deigann síga þrátt fyrir hrossaveikina og halda dagskrá…! Hinn árlegi ratleikur, sem var frestað á sumardaginn fyrsta, verður haldinn á fimmtudaginn 13. maí, Uppstigningardag.
Allir að mæta, HESTLAUSIR, í hringgerðið kl. 11:00 þar sem skipt verður í 4 lið og svo förum við í hinn æsispennandi og skemmtilega ratleik, nú með aðeins breyttu sniði.
Grillaðar pylsur og fleira fyrir alla í lok leiksins. Sótafélagar, sýnum samstöðu og leikum okkur saman í hrossapestinni.
Mætum öll! Kveðja / Ferða og skemmtinefnd
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH