Fjölhæfir ungir knapar

  • 3. apríl 2012
  • Fréttir
Fjölhæfir ungir knapar

Mikið var um dýrðir á stórsýningunni Æskan og hesturinn sem haldin var í reiðhöllinni í Víðidal á sunnudaginn var, 1. apríl.

Ríflega hundrað börn og unglingar komu fram á þessari stórskemmtilegu sýningu í hinum ýmsu hlutverkum,  yngsta kynslóðin klædd upp í litríka búninga voru teymd undir traustum fákum, unglingar spreyttu sig í smalabraut, stúlkur úr hestamannafélaginu Herði sýndu hindrunarstökk, Fáksstelpur spiluðu hestaknattleik, unglingalandsliðið U21 var með gangtegundakynningu og nokkar fimar stúlkur úr hestamannafélaginu Þyt sýndu fjölhæfni sína í fimleikum á hesti og svo mætti lengur telja.

Myndir frá sýningunni má nú nálgast hér á ljósmyndasafni Eiðfaxa.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link