Sjálfboðaliðar á Landsmóti

  • 2. maí 2016
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Umsóknarfrestur er til 15.maí
Landsmót hestamanna hafa í áranna rás verið borin uppi af óeigingjörnu framlagi sjálfboðaliða úr hestamannafélögum landsins. Sami eldmóður og hugsjón einkenna starfið í dag og í upphafi og margir sjálfboðaliðar gefa vinnu sína ár eftir ár. Gífurlegur undirbúningur liggur í að skipuleggja Landsmót og til að mæta kröfum nútímans um aðbúnað og skipulag reisum við heilt þorp fyrir allt að 15.000 manns. Framlag sjálboðaliða er því gríðarlega mikilvægt og skiptir höfuðmáli til að gera umgjörð mótsins sem glæsilegasta.
 
Sjálfboðaliðar sem taka þátt í Landsmóti vinna a.m.k. þrjár vaktir á meðan á mótinu stendur. Þeir sem eru áhugasamir geta þó að sjálfsögðu tekið að sér fleiri vaktir því verkefnin eru næg. Hver vakt varir í 6 klukkustundir og er sjálfboðaliðum skipt niður í hópa sem fá síðan úthlutað ákveðið ábyrgðarsvið eða verkefni.
 
Nánari upplýsingar um sjálfboðaliðastarfið má finna hérhttp://www.landsmot.is/is/upplysingar/sjalfbodalidar
 
Til að sækja um þarf að fylla út umsókn á síðu landsmóts og senda góða andlitsmynd með umsókninni á [email protected]
 
Umsóknarfrestur er 15. maí 2016!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link