Tveir nýjir á topplistanum
Það kemur fáum á óvart að Spuni frá Vesturkoti er hæstur í kynbótamati stóðhesta á Íslandi, en þegar listinn yfir 10 hæstu stóðhesta er skoðaður kemur í ljós að gæðingurinn Konsert frá Hofi er kominn í þriðja sætið.
Arion er í öðru sæti og sigurvegari 5 vetra flokksins á LM2014 Ölnir frá Akranesi er í áttunda sæti.
Af öðrum nýjum hestum á topp 10 er Kvistssonurinn Sproti frá Innri-Skeljabrekku sem var þriðji í 4 vetra flokki stóðhesta á LM2014. En faðir hans er hæstur hesta með lágmörk til 1.verðlauna fyrir afkvæmi með 127 stig.
Þegar mæður þessara hesta eru skoðaðar þá kemur í ljós að allar þeirra eru hátt dæmdar 1.verðlauna hryssur og þrjár þeirra hafa hlotið heiðursverðlaun, þær Þoka frá Hólum, Gígja frá Auðsholtshjáleigu og Álfadís frá Selfossi.
Hér er listi yfir hæstu stóðhesta í kynbótamati á Íslandi:
IS2006187114 Spuni frá Vesturkoti 135
IS2007186189 Arion frá Eystra-Fróðholti 129
IS2010156107 Konsert frá Hofi 129
IS2009101167 Þórálfur frá Prestsbæ 129
IS2007187017 Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu 128
IS2010135610 Sproti frá Innri-Skeljabrekku 128
IS2003156956 Kvistur frá Skagaströnd 127
IS2009135006 Ölnir frá Akranesi 127
IS2007187660 Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum 127
IS2007186104 Sjóður frá Kirkjubæ 127
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH