Lífið hjá hestamannafélögum: Félagssvæðin bætt og afreksfólk verðlaunað
Vetrarstarf hestamannafélaganna er að detta í gang, með boðun framkvæmda, dyttað er að félagssvæðum og upplýsingum safnað til þess að útnefna viðurkenningahafa fyrir góðan árangur í keppnum ársins:
- Framkvæmdir við Sörlastaði hefjast í dag og munu standa yfir helgina, en hvatt er til þess að félagsmenn leggi framkvæmdunum lið. Áhugasamir vinnumenn eru beðnir um að senda nafn sitt og símanúmer á [email protected] eða hringja í 897 2919 og láta vita af sér.
- Skuggi boðar endurbætur á keppnisvöllum félagsins. Stjórnin hefur nú samþykkt tillögur reiðvallarnefndar að nýjum girðingum og farið verður í framkvæmdir strax.
- Eflaust verður kátt á hjalla hjá Sleipnismönnum sem munu halda Sviðamessu í kvöld.
- Kvennadeild Fáks hélt aðalfund sinn á dögunum þar sem stjórn fyrra árs var kosinn til að sinna störfum nefndarinnar áfram. Stefnt er að hefðbundinni dagskrá nefndarinnar í vetur en hún kallar jafnvel eftir hugmyndum að viðburðum.
- Haustfundur Hrings er á næsta leyti og kallar stjórn félagsins eftir félagsmönnum í nefndarstörf fyrir veturinn. Hvatt er til þess að áhugasamir félagsmenn sendi póst á netfangið [email protected] fyrir föstudaginn 28.október hafi þeir hug á að starfa fyrir félagið. Ennfremur safnar stjórn félagsins nú upplýsingum um árangur félagsmanna á mótum sl. ár, en á hausfundinum mun vera tilkynnt um íþróttamann Hrings.
- Mótanefnd Mána ætla einnig að velja sína viðurkenningahafa bráðlega og óskar stjórnin eftir því að þeir félagsmenn sem kepptu í hestaíþóttum á árinu sendi árangur sinn á emaili til [email protected] fyrir 10. nóvember.
- Aðalfundur Sóta verður haldinn miðvikudaginn 16. nóvember nk. og eru félagsmenn hvattir til að bjóða sig fram í nefndir félagsins á netfangið [email protected] . Þá mun félagið halda Uppskeruhátíð fyrir unga félagsmenn föstudaginn 28. október nk.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH