Meistaramót Fákasels
Fimmgangur í Meistaramóti Fákasels og Ljúfs fór fram í dag. Þar mátti sjá margar frábærar sýningar en sigurvegarinn var Ævar Örn Guðjónsson og Kolgrímur frá Akureyri sem hlutu 7,62 í úrslitum, en sú einkunn hefði dugað til sigurs í Meistaradeildinni. Önnur varð Fanney Valsdóttir á gæðingshryssunni Sif frá Akurgerði 2, en þetta var frumraun þeirra í fimmgangi og uppskeran 7,21 í úrslitum;
Mótinu var frestað um viku vegna veðurs en þar sem Meistaramót Æskunnar fór fram á sama tíma var einungis einn þátttakandi í unglingaflokki, en við því var ekkert að gera.
Verðlaun á mótinu voru gefin af Toyota Selfossi en sigurvegari í unglingaflokki fékk þar að auki reiðtíma hjá Ísólfi Líndal Þórissyni og sigurvegari í opnum flokki folatoll undir Þröst frá Hvammi. Mótanefnd Ljúfs þakkar gefendum þessara verðlauna innilega fyrir.
Næsta mót er eftir eina viku en þá verður keppt í tölti.
Allir eiga vitanlega möguleika á sigri í samanlögðu en þar eru glæsileg málverk í boði, gefin af Ástey Art og Sigurlínu Kristinsdóttur.
Meðfylgjandi eru úrslit;
Fimmgangur F2
A úrslit 1. flokkur –
1 Ævar Örn Guðjónsson / Kolgrímur frá Akureyri 7,62
2 Fanney Guðrún Valsdóttir / Sif frá Akurgerði II 7,21
3 Elin Holst / Jónatan frá Syðri-Gegnishólum 6,69
4 Sigursteinn Sumarliðason / Krókus frá Dalbæ 6,50
5 Edda Rún Ragnarsdóttir / Nótt frá Flögu 6,17
6 Bjarni Sveinsson / Elding frá Laugardælum 6,05
7 Reynir Örn Pálmason / Laxnes frá Lambanesi 5,98
Fimmgangur F2
Forkeppni 1. flokkur –
1 Ævar Örn Guðjónsson / Kolgrímur frá Akureyri 7,40
2 Fanney Guðrún Valsdóttir / Sif frá Akurgerði II 6,80
3 Reynir Örn Pálmason / Laxnes frá Lambanesi 6,73
4 Edda Rún Ragnarsdóttir / Nótt frá Flögu 6,63
5 Elin Holst / Jónatan frá Syðri-Gegnishólum 6,60
42162 Bjarni Sveinsson / Elding frá Laugardælum 6,50
42162 Sigursteinn Sumarliðason / Krókus frá Dalbæ 6,50
8 Sólon Morthens / Gáll frá Dalbæ 6,33
9 Friðrik Þórarinsson / Hrafnaflóki frá Vogsósum 2 6,27
10 Helgi Þór Guðjónsson / Klöpp frá Tóftum 6,00
11 Janus Halldór Eiríksson / Harpa frá Kambi 5,90
12 Herdís Rútsdóttir / Irpa frá Skíðbakka I 5,83
13 Sólon Morthens / Kátur frá Efsta-Dal II 5,53
14 Finnur Jóhannesson / Gletta frá Glæsibæ 5,43
15 Hrefna Hallgrímsdóttir / Gyllir frá Þúfu í Kjós 5,37
16 Atli Freyr Maríönnuson / Dimmi frá Ingólfshvoli 4,50
17 Emilia Andersson / Dóra frá Laugabóli 4,27
18-20 Pernille Lyager Möller / Álfsteinn frá Hvolsvelli 0,00
18-20 Sara Ástþórsdóttir / Sprengigígur frá Álfhólum 0,00
18-20 Sigurður Helgi Ólafsson / Þórunn frá Kjalarlandi 0,00
Fimmgangur F2
Forkeppni Unglingaflokkur –
1 Katrín Eva Grétarsdóttir / Fjarkadís frá Austurkoti 3,93
42038 Kristófer Darri Sigurðsson / Vorboði frá Kópavogi 0,00
42038 Benjamín S. Ingólfsson / Salka frá Káragerði 0,00
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH