Taktu endilega Jóa Vakra með þér – frásögn Guðmundar Sveinssonar

  • 18. apríl 2020
  • Fréttir

Hrafnhetta frá Sauðárkróki og Þorsteinn Jónsson. Mynd: Facebooksíða Guðmundar Sveinssonar

Á fésbókarsíðu Guðmundar Sveinssonar, hrossaræktanda á Sauðárkróki, birtist í gærkvöldi skemmtileg frásögn af frægum mönnum og nafntoguðum hrossum.

Maí 1974.

Snillingurinn Steini Jóns er við tamningar að Höskuldsstöðum í Eyjafirði.
Steini hringir í pabba, biður hann að koma og kíkja á Hrafnhettu sem var þar í þjálfun hjá honum. ,,Taktu endilega Jóa Vakra með þér“ . Við fórum þrír pabbi, ég og Jói. Þegar í Höskuldsstaði var komið og búið að þiggja kaffisopa hjá Sigurði bónda þeim sómamanni var farið í hesthúsið. Lagt var á Hrafnhettu og hún teymd út. “ það er best að þú farir á bak og prófir “ segir Steini við Jóa og glottir. Jói prófar hryssuna og leggur hana feikna sprett, kemur hálf hlæjandi í hlað og telur þetta í góðu lagi. “ eru þið nokkuð að flýta ykkur “ segir Steini. Ég er hérna með fola á fjórða vetur, svolítið efnilegan held ég. Jói farðu smá hring á honum og vittu hvað þér finnst, gæti trúað að hann væri vakur. Jói fer á folann brúna og þreifar eftir skeiði og þvílíkt flug á folanum. Steini vissi sínu viti. Um sumarið mættu þau bæði á Landsmót á Vindheimamelum Hrafnhetta og Náttfari.

Hrafnhetta frá Sauðárkróki varð þriðja í flokki sex vetra hryssa á Landsmótinu á Vindheimamelum þetta ár. Hún hlaut þá fyrir sköpulag 7,70 en fyrir hæfileika hvorki meira né minna en 8,92 þar af 9,5 fyrir skeið og vilja. Hrafnhetta hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi og markar djúp og farsæl spor í hrossaræktinni.

Náttfari frá Ytra-Dalsgerði stóð uppi sem sigurvegari í flokki fjögurra vetra stóðhesta á Landsmótinu á Vindheimamelum þetta ár. Hlaut hann 7,80 fyrir sköpulag og 8.33 fyrir hæfileika. Fjórum árum síðar, 1978, hlaut hann svo einkunnina 10,0 fyrir skeið. Hann hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi 1986.

Jóhann „Vakri“ Þorsteinsson og Náttfari

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link