138 hross búin að ná einkunna lágmörkum inn á Landsmót

  • 5. júní 2012
  • Fréttir
138 hross búin að ná einkunna lágmörkum inn á Landsmót

Gæðingarnir hrannast inn á Landsmót en nú þegar eru komin 138 hross inn á Landsmót, 55 stóðhestar og 83 hryssur. 5 vetra flokkurinn er lang fjölmennasti flokkurinn en 37 fimm vetra hryssur eru komnar inn og 22 stóðhestar. Nú er farið að styttast í annan endan á sýningarhaldi fyrir Landsmót, en einungis er eftir þessi vika á Hellu og Dalvík og síðan lýkur kynbótasýningunni á Miðfossum þann 14.júní.

Með hæstu aðaleinkunn stóðhesta er Hrannar frá Flugumýri en hann er með 8,85 í aðaleinkunn. Hrannar var sýndur á Selfossi og knapi var Þorvaldur Árni Þorvaldsson. Með hæstu aðaleinkunn hryssna er Ferna frá Hólum en hún hlaut 8,61 í aðaleinkunn. Ferna var sýnd á Vindheimamelum og knapi hennar var Þórarinn Eymundsson. 

 

Efstur í flokki 7. vetra og eldri stóðhesta er Konsert frá Korpu með 8,61. Annar er Hnokki frá Þúfum með 8,59 og þriðji er hann Óskasteinn frá Íbishóli með 8,56
Efstur í flokki 6 vetra stóðhesta er Hrannar frá Flugumýri 2 með 8,85. Annar er Krókur frá Ytra-Dalsgerði með 8,52 og þriðji er hann Maríus frá Hvanneyri með 8,46
Efstur í flokki 5 vetra stóðhesta er Eldur frá Torfunesi með 8,60 í aðaleinkunn. Annar er Skýr frá Skálakoti með 8,55 og þriðji er Arion frá Eystra-Fróðholti með 8,49
Efstur í flokki 4 vetra stóðhesta er Hrafn frá Efri-Rauðlaæk með 8,28 í aðaleinkunn. Annar er Hrói frá Flekkudal með 8,17 og þriðji er Nói frá Stóra-Hofi með 8,17
 
Efst í flokki 7 vetra og eldri hryssna er Álfadrottning frá Austurkoti með 8,53. Önnur er Djásn frá Hnjúki með 8,50 og þriðja er Álfarún frá Halakoti með 8,37
Efst í fokki 6 vetra hryssna er Ferna frá Hólum með 8,61 í aðaleinkunn. Önnur er Spá frá Eystra-Fróðholti með 8,52 og jafnar í þriðja eru þær Gjöf frá Vindási og Þokkafull frá Hamarshjáleigu með 8,34.
Efst í flokki 5 vetra hryssna er Fura frá Hellu með 8,31 í aðaleinkunn. Önnur er Huldumær frá Herriðarhóli með 8,26 og þriðja er Blíða frá Litlu-Tungu 2 með 8,25
Efst í flokki 4 vetra hryssna er Hnit frá Koltursey með 8,24 í aðaleinkunn. Jafnar koma síðan þær Flauta frá Skúfslæk og Karmen frá Blesastöðum 1A með 8,14

Meðfylgjandi er dómur Hrannars og Fernu.

IS2006158620 Hrannar frá Flugumýri II
Örmerki: 352206000038892
Litur: 2500 Brúnn/milli- einlitt
Ræktandi: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Páll Bjarki Pálsson
Eigandi: Eyrún Anna Sigurðardóttir, Júlía Kristín Pálsdóttir, Þórdís Inga Pálsdóttir
F.: IS1995165864 Kraftur frá Bringu
Ff.: IS1988165895 Gustur frá Hóli
Fm.: IS1987265016 Salka frá Kvíabekk
M.: IS1992258600 Hending frá Flugumýri
Mf.: IS1986157700 Kveikur frá Miðsitju
Mm.: IS1979258601 Harpa frá Flugumýri
FORSKOÐUNARDÓMUR
Héraðssýning Selfossi
Mál (cm): 144 – 135 – 140 – 62 – 143 – 37 – 47 – 43 – 6,6 – 30,0 – 19,0
Hófa mál: V.fr.: 8,4 – V.a.: 7,8
Sköpulag: 7,5 – 8,5 – 8,0 – 9,0 – 8,0 – 8,0 – 9,0 – 7,0 = 8,39
Hæfileikar: 9,5 – 9,5 – 9,0 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 8,0 = 9,16
Aðaleinkunn: 8,85      Hægt tölt: 9,0      Hægt stökk: 8,5
Sýnandi: Þorvaldur Árni Þorvaldsson

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link