Gallagripir fá ekki verðlaun

  • 10. apríl 2012
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Reglur varðandi stóðhesta með erfðagalla

Tilkynning frá fagráði í hrossarækt:

Reglur varðandi stóðhesta með erfðagalla

Ekki er vilji í fagráði í hrossarækt til banna notkun slíkra gripa á Íslandi, jafnvel þó ljóst sé að þeir fengju víðast hvar ekki notkunarleyfi á erlendri grund. Fagráð er sammála um að vekja skuli meiri athygli á slíkum gallagripum og stuðla með því að minni notkun þeirra, enda eitt af ræktunarmarkmiðum okkar heilbrigður og frjósamur hestur.

Frá vorinu hefur því verið ákveðið að eftirfarandi regla gildi:

Hestar með eistnagalla sem jafngilda rauðu T eða með rautt S vegna spatts verði ekki verðlaunaðir á kynbótasýningum né heldur hljóti þeir þátttökurétt á landsmótum í einstaklingssýningum kynbótahrossa.

Þeir eistnagallar sem jafngilda rauðu T eru eftirfarandi:
Stinnleiki eistna er metinn í þrjá flokka. Við stinnleika 3 er eistað lint og mjúkt og telst þá alvarlegur galli.
Snúningur á eistum. Ef bæði eistu eru snúin um 180°.
Ekkert eða aðeins eitt eista.
Bæði eistu óeðlilega smá eða 50% munur á stærð (rúmmáli) eistna.
Heildarbreidd pungs TSW undir 8 sm.
Þarmar finnast í pung.

Ef einhverjar af ofantöldum athugasemdum eiga við, hefur eigandi hestsins tvær vikur til að hnekkja áliti dómara með skriflegum úrskurði dýralæknis sýnist honum vafi leika á réttmæti athugasemdarinnar.
Ef ekki næst að skoða og mæla eistu á fullnægjandi hátt, þarf að skila dýralæknisvottorði um eistna heilbrigði gripsins. Að öðrum kosti er sett athugasemd í WorldFeng um að heilbrigði hafi ekki verið vottað af dómnefnd.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link