Ræktunardagur Eiðfaxa – Stefnir í frábæra dagskrá

  • 6. maí 2020
  • Fréttir

Adrían frá Garðshorni á Þelamörk

Ræktunardagur Eiðfaxa verður haldinn hátíðlegur laugardaginn 9.maí og hefst hann klukkan 14:00. Undirbúningur í fullum gangi, mikill áhugi er meðal ræktenda og stóðhestaeigenda að taka þátt og nú þegar hafa hrossaræktarbú og stóðhestar boðað komu sína. Eins og staðan er núna spáir glaða sólskini þennan dag.

Hér fyrir neðan kynnum við nokkur af þeim atriðum sem staðfest hafa mætingu en þeirra á meðal eru þrír Landsmótssigurvegarar auk frábærra ungra og efnilegra stóðhesta.

Eins og áður hefur verið auglýst mun verða sýnt beint frá deginum um heim allan og verður honum lýst á þremur tungumálum íslensku, þýsku og ensku.

Landsmótssigurvegarinn Adrían frá Garðshorni á Þelamörk hlaut í aðaleinkunn 8,63 þegar hann stóð efstur í flokki fimm vetra stóðhesta á Landsmóti 2018. Hlaut hann þá m.a. einkunnina 9,5 fyrir tölt og þá hefur hann hlotið 9,0 fyrir fegurð í reið og vilja og geðslag.

Biskup og Bikar frá Ólafshaga koma fram saman en þeir eru báðir úr ræktun Ólafs Finnboga Haraldssonar. Biskup og knapi hans Benedikt Ólafsson sigruðu Unglingaflokk glæsilega á Landsmóti 2018, Bikar er frábær klárhestur sem hlotið hefur háan kynbótadóm og þar á með 9,0 fyrir tölt, brokk, stökk, fegurð í reið og hægt stökk.

Sirkus frá Garðshorni á Þelamörk stóð efstur fjögurra vetra hesta á Landsmóti 2016. Um er að ræða glæsilegan íslenskan gæðinga, rúman og fjörmikinn. Hann hefur m.a hlotið 9,5 fyrir vilja og geðslag og 9,0 tölt, brokk og fegurð í reið.

Fleiri atriði verða kynnt hér á vef Eiðfaxa næstu daga. Takið daginn frá því enginn áhugamaður um íslenska hestinn má missa af þeirri veislu sem stefnir í.

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link