Ræktunardagur Eiðfaxa – Veðurspáin frábær og gæðingarnir líka
Jökull frá Rauðalæk er einn af þeim stóðhestum sem mæta á Ræktunardaginn Mynd: Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir
Það verður nóg til að gleðja augu hestafólks á Ræktunardegi Eiðfaxa næstkomandi laugardag, enda bætist stöðugt í hóp þeirra úrvalshrossa og knapa sem þar munu koma fram. Þá skemmir veðurspáin ekki fyrir en það spáir glampandi sól og bongóblíðu.
Jökull frá Rauðalæk hefur hlotið 9,5 fyrir brokk, hægt stökk og fegurð í reið þá er hann með 9,0 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag og hægt tölt. Þessir eftirtektarverði klárhestur mætir í sólina í Víðidalnum.
Sjóður frá Kirkjubæ er sannur íslenskur gæðingur sem náð hefur árangri á öllum sviðum hvort sem er í kynbótadómi, gæðinga- eða íþróttakeppni. Þá hlaut hann 1.verðlaun fyrir afkvæmi á Landsmóti 2018. Sjóður mætir í Víðidalinn á Ræktunardag Eiðfaxa ásamt glæsilegum fulltrúum afkvæma sinna.
Salvar og Terna frá Fornusöndum eru glæsileg systkin undan gæðingamóðurinni Hviðu frá Skipaskaga. Bæði hafa þau hlotið glæsilegar einkunnir í kynbótadómi auk þess að hafa vakið athygli á keppnis vellinum.
Ræktunarbúið Hrísdalur mætir með glæsilega fulltrúa sinnar ræktunnar og þar má nefna Stegg frá Hrísdal sem að er einhver eftirtektarverðasti stóðhestur landsins. Sýning þeirra í Hrísdal verður skemmtileg því þar mætir fólkið sem stendur á bak við ræktunina í Hrísdal og sýnir sýna hesta sjálft.
Skógur frá Ytri-Skógum er háættaður ungur og efnilegur stóðhestur undan Aroni frá Strandarhöfði og glæsihryssunni Gná frá Ytri-Skógum sm hlaut m.a. 9,5 fyrir hægt tölt.
Þristur frá Tungu er hátt dæmdur stóðhestur undan hinni eftirminnilegu Fantasíu frá Breiðstöðum og Ágústínus frá Melaleiti. Hestur með 8,50 fyrir hæfileika sem hefur allt. Þrátt fyrir ungan aldur er hann farinn að láta til sín taka á keppnisvellinum. Lýsir frá Breiðstöðum er 1.verðlauna stóðhestur undan Lukku-Láka með frábærar gangtegundir, 9,0 fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið hann er eins og Þristur frá Tungu einnig undan gæðingamóðurinni Fantasíu frá Breiðstöðum.
Huginn frá Bergi vakti verðskuldaða athygli í fimmgangskeppni Meistaradeildarinnar fyrr í vetur þar sem hann var í úrslitum. Gríðarlega fallegur gripur með 8,52 í aðaleinkunn Huginn mætir í sólina í Víðidalnum á morgun.
Sýnt verður beint frá deginum um heim allan hér á eidfaxi.is og verður honum lýst á þremur tungumálum íslensku, þýsku og ensku. Ekki missa af rjómanum af íslenskri ræktun á laugardaginn. Frekari upplýsingar og slóð á útsendingu munu birtast á vefsíðu Eiðfaxa á morgun föstudag, takið daginn frá!
Frekari upplýsingar um beinu útsendinguna og áhofendur á staðnum koma á vef Eiðfaxa síðar í dag.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH