Meistaradeild Líflands & æskunnar í beinni útsendingu

  • 10. maí 2020
  • Fréttir
Lokamótið í MD Líflands & æskunnar verður á morgun sunnudag. Mótið hefst kl. 12:00 og þar munu 40 keppendur í 10 liðum etja kappi og koma fílefldir til leiks eftir langa keppnispásu sem að öllum líkindum hefur þó nýst vel til þjálfunar.
Að forkeppni lokinni verður gert hlé og síðan eru riðin B-úrslit. Sigurvegari þeirra úrslita öðlast þó ekki keppnisrétt í A-úrslitum, einfaldlega vegna þess að það yrði of mikið álag á hestinn á of stuttum tíma. Hins vegar hlýtur hann dýrmæt stig í keppni um stigahæsta knapann, um leið og allir í B-úrslitum öðlast góða reynslu í því að ríða úrslit.
Rúsínan í pylsuendanum eru svo A-úrslitin, þar sem fimm efstu knapar úr forkeppni fá annað tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og þar getur allt gerst hjá toppknöpum á góðum og vel þjálfuðum hestum.
Að úrslitum loknum verða verðlaunaafhendingar þar sem sigurvegari deildarinnar hlýtur verðlaun fyrir árangur sinn og einnig stigahæsta liðið í vetur.
Á vefnum www.mdeild.is fá finna ýmsar upplýsingar um Meistaradeild Líflands og æskunnar í hestaíþróttum, sem og á Facebook síðunni „Meistaradeild Líflands og æskunnar“.
Vegna samkomubannsins sem varað hefur síðustu vikurnar, er áhorfendabann en mótinu verður streymt. Tengill á streymið kemur inn á Facebook síðu MD Líflands og æskunnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link