Myndir frá Uppskeruhátíð Hestamanna
Uppskeruhátíð hestamanna fór fram á Broadway í gærkvöldi. Jóhann R. Skúlason var valinn knapi ársins, Ragnar Tómasson fékk heiðursverðlaun LH fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu hestamennskunar og Efri-Rauðalækur var valið ræktunarbú keppnishesta.
Gæðingaknapi ársins: Ísólfur Líndal Þórisson
Skeiðknapi ársins: Bergþór Eggertsson
Íþróttaknapi ársins: Jakob Svavar Sigurðsson
Kynbótaknapi ársins: Árni Björn Pálsson
Efnilegasti knapinn: Konráð Valur Sveinsson
Ræktunarbú ársins: Efri-Rauðalækur
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá Uppskeruhátíðinni, en fleiri myndir munu svo birtast í næstu tölublöðum Eiðfaxa. Hægt er að gerast áskrifandi í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH