Horses of Iceland kalla eftir ykkar innleggi!
Markaðsverkefnið Horses of Iceland er á tímamótum. Upphaflegi samstarfssamningurinn okkar við ríkisstjórnina, sem var til fjögurra ára, hefur verið framlengdur fram á mitt ár 2021 og við erum að vinna í nýjum langtímasamingi.
Við erum einnig að fara yfir markaðsáætlun okkar, endurskoða markhópa, markaðsaðgerðir o.fl. og köllum eftir ykkar innleggi! Allir þeir sem hafa áhuga á íslenska hestinum, hvort sem þeir eru samstarfsaðilar í verkefninu eða ekki, á Íslandi og erlendis, eru velkomnir með okkur á rafrænt hugarflug.
Opinn fundur verður haldinn á ensku, fimmtudaginn 14. maí kl. 9 (kl. 11 á meginlandi Evrópu). Hafið samband við verkefnastjóra Horses of Iceland, Jelenu Ohm, fyrir frekari upplýsingar: [email protected].
Skráðu þig með því að smella hér fyrir neðan
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH