Bein útsending frá lokamóti Equsana deildarinnar

  • 12. maí 2020
  • Fréttir

Bein útsending verður á Stöð 2 Sport frá lokamóti Equsana deildar í hestaíþróttum, en Stöð 2 Sport í samvinnu við Eiðfaxa hafa unnið að gerð þátta um þessa skemmtilegu deild í vetur en nú verður lokamótið sýnt beint.

Sérfræðingar í setti verða þær Hulda Gústafsdóttir og Telma Tómasson auk þess að Gísli Guðjónsson mun taka viðtöl við keppendur.

Úsendingin hefst klukkan 18:00 í kvöld,  þriðjudaginn 12.maí, á forkeppni í tölti. Sértu ekki áskrifandi að Sportinu þá er hægt að kaupa stakan viðburð í myndlyklum Vodafone og Símans.

Farið er í „Viðburði“ á forsíðu og smella á „Equsana deildin“ (sjá meðfylgjandi mynd).

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link