Mette sigraði einstaklingskeppnina og lið Þúfna stigahæst
Lið Þúfna f.v. Bergrún Ingólfsdóttir, Gísli Gíslason, Mette Mannseth og Barbara Wenzl þá er einnig í liðinu Lea Busch. mynd: Bjarney Anna Þórsdóttir
Mette Mannseth stendur uppi sem sigurvegari í Meistaradeild KS árið 2020 auk þess að lið Þúfna sigraði í liðakeppni. Mette átti góðan vetur ogsigraði fjórgang og hlaut annað sæti í gæðingafimi á hryssunni Skálmöld frá Þúfum, annað sæti í tölti með List frá Þúfum og þriðja sæti í slaktaumatölti á Hryðju frá Þúfum. Einnig reið hún B-úrslit í fimmgangi á Kalsa frá Þúfum og lagði Vívalda frá Torfunesi í gegn um höllina og hlaut þar níunda sæti!
Einstaklingskeppni
1. Mette Mannseth 121,5 stig
2. Þórarinn Eymundsson 101,5 stig
3. Randi Holaker 97 stig
4. Bjarni Jónasson 96 stig
5. Barbara Wenzl 81 stig

Mette fagnaði sigrinum vel og innilega mynd:Bjarney Anna Þórsdóttir
Liðkeppni
1. Þúfur 333,5 stig
2. Hrímnir 308 stig
3. Syðra Skörðugil/Weierholz 246,5 stig
4. Regulator Complete/ Skáney 240 stig
5. Equinics 195,5 stig
6. Íbishóll 182 stig
7. Leiknisliðið 179,5 stig
8. Kerckhaert 179 stig
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH