Skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar – opið fyrir skráningar

  • 14. maí 2020
  • Fréttir

Skráning opin – Vegna veðreiða er ekki tekið við skráningum eftir að henni lýkur!

Skráning á fyrstu skeiðleika ársins er hafinn. Leikarnir fara fram miðvikudagskvöldið 20.maí og munu vera með hefðbundni sniði en byrjað verður á 250 metra skeiði og endað á 100 metra skeiði.

Skráning er opin en henni lokar sunnudaginn 17.maí. Velja þarf Skeiðfélagið sem mótshaldara í sportgfeng skráningargjald er 3000 krónur í hverja keppnisgrein.

Við hvetjum alla knapa til að taka þátt í öllum skeiðleikum enda til mikils að vinna – 100.000 króna gjafaúttekt í Baldvin og Þorvaldi fyrir heildarsigurvegara og farandbikarinn Öderinn veittur stigahæsta knapa!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link