Elsa Hreggviðsdóttur alveg svellköld

  • 19. mars 2012
  • Fréttir
Grýta frá Garðabæ klikkaði ekki

Elsa Hreggviðsdóttir sigraði flokkinn „Meira vanar“ á Svellköldum konum 2012 í Skautahöllinni eftir tvísýna keppni. Elsa var hins vegar alveg svellköld og reið öll úrslitin eins og sigurvegari. Hún keppti á hryssunni Grýtu frá Garðabæ, sem hefur staðið framarlega í keppni undanfarin tvö ár undir hnakk hjá hinni knáu reiðkonu Bylgju Gauksdóttur. Og er í eigu móður Bylgju, Grétu Boða.

Elsa er uppalin í Svíþjóð en starfar nú við tamningar hjá Bylgju á Rauðalæk í Holtum. Hún er dóttir Hreggviðs Eyvindssonar og Jenny Mandal, sem eru búsett í Svíþjóð og reka hrossabú þar. Grýta er aftur á móti undan Sveini-Hervari frá Þúfu og Flugu frá Garðabæ, Ófeigsdóttur frá Flugumýri.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link