Styrkja þarf ímynd íslenska hestsins
Íslandsstofa og Félag hrossabænda boða til kynningarfundar á stefnumörkun í markaðssamskiptum íslenska hestsins.
„Umræða um sameiginlegt markaðsstarf fyrir íslenska hestinn hefur vaxið í greininni á undanförnum árum. Nú er komið að því að hagsmunaaðilar taki höndum saman um að marka stefnu og gera aðgerðaáætlun sem hefur það að markmiði að styrkja ímynd íslenska hestsins á erlendri grundu með samhæfðum skilaboðum, markaðsaðgerðum og kynningarstarfi,“ segir í sameiginlegri tilkynningu frá félögunum.
Hagsmunaaðila í greininni eru hvattir til að mæta á fundinn; samtökum í ræktun, útflutningi og þjónustu og vörum sem tengist íslenska hestinum, til að taka þátt í þessu sameiginlega markaðsstarfi. Verkefnið, markmið þess og framkvæmd verða kynnt á fundi þriðjudaginn 14. apríl kl. 16.00 í sal Menntaskóla Borgarfjarðar. Boðið verður upp á léttar veitingar og að sjálfsögðu skemmtilegar umræður.
Áhugasamir vinsamlega skráið ykkur á fundinn með því að senda á [email protected] merkt “Markaðssetning íslenska hestsins.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH