Fimmgangur á fimmtudaginn
Keppt verður í fimmgangi í KEA mótaröðinni þann 27.febrúar. Í öllum flokkum verða 2 knapar inná vellinum í einu. Hestarnir sýna fimm gangtegundir eftir fyrirmælum þular. Knapar hefja keppni upp á þá hönd sem þeir eru skráðir í ráslista.
1.Hægt til millferðar tölt
2.Hægt til milliferðar brokk
3.Meðalfet
4.Hægt til milliferðar stökk
5.Flugskeið – Flugskeið sýnt 2x á langhlið fjær áhorfendum.
Hestar sem taka þátt í þessari grein mega taka þátt í öðrum fjórgangs eða fimmgangsgreinum . Í þeim flokkum þar sem skráning fer yfir 16 knapa verða riðin A og B úrslit.
Knapafundur og starfsfólk mæti kl 17:00 . Keppni hefst kl 18:00.
HÉR er ráslistinn
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH