Léttir – Töltmót BE húsbygginga ehf.
Nú er komið að öðru mótinu okkar í ár. Mótið verður þriðjudaginn 9.júní. Hefst mótið kl. 17:00.
Keppt verður í:
Tölt T3 – Barnaflokkur
Tölt T3 – Unglingaflokkur
Tölt T1 – Ungmennaflokkur
Tölt T3 – 2.flokkur
Tölt T1 – 1.flokkur
Tölt T2 – Opinn flokkur
Tölt T4 – Opinn flokkur
Skráning er hafin á https://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add og lýkur skráningu á miðnætti, laugardaginn 06. júní . Skráningargjald er 3000 kr. fyrir hvern skráðan hest.
Skeiðvallanefnd áskilur sér rétt á að fella niður flokka ef þátttaka er ekki næg.
Keppendur eru beðnir að skoða vel hvort knapi og hestur eru að keppa fyrir rétt félag. Ef ekki vinsamlega sendið póst á [email protected] til leiðréttingar, gott er að skrá sig með fyrirvara svo hægt sé að leiðrétta skráningarnar í tíma. Afskráningar þurfa að berast á [email protected] að lágmarki klukkutíma áður en mótið hefst. Mótstjóri er Andrea Þorvaldsdóttir s. 8646430.
Aðalstyrktaraðili mótsins eru B.E. húsbyggingar ehf
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Landsliðsteymi Danmerkur fyrir árið 2027 klárt