Styttist í Líflandsmótið
Laugardaginn 13. júní halda hestamannafélögin Faxi og Skuggi gæðingamót sitt, Líflandsmótið. Mótið verður haldið á félagssvæði Skugga í Borgarnesi og hefst kl. 10. Röð flokka verður birt að lokinni skráningu.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum og greinum:
A flokkur gæðinga, B flokkur gæðinga, C flokkur, ungmennaflokkur, unglingaflokkur, barnaflokkur, 150 m. skeið. Ennfremur verður haldin hefðbundin hryssukeppni Hmf. Faxa að afloknum úrslitum (skráning á staðnum)
Skráningargjöld eru kr. 2.500.- í A, B og C flokkum en 1.500.- í öðrum flokkum og skeiði. Reikningsnúmer er 0354-13-4810 – kt: 481079-0399.
Skráningarfrestur er til kl. 24 miðvikudaginn 10. júní. Keppt verður eftir reglum LH og eru knapar minntir á að kynna sér þær vel.
Skráningar fara fram í gegn um skráningarkerfi Sportfengs (http://skraning.sportfengur.com/ ) og er Skuggi mótshaldari. Hægt er að leyta aðstoðar í gegn um netfangið [email protected] eða í s: 898-4569.
Mótanefnd Faxa og Skugga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH