Lið Málningar sigurvegari í liðakeppni
Meistaradeild Ungmenna og Dýralækna Sandhólaferju 2020 þakkar fyrir sig og allan þann stuðning sem deildin fékk í vetur og einnig nú á lokamóti deildarinnar sem haldið var á Brávöllum á Selfossi sem er keppnissvæði Sleipnis. Hin 3 mótin fóru fram í Fákaseli í Ölfusi og þökkum við þeim fyrir aðstöðuna sem deildin fékk þar.
Aðalstyrkaraðili deildarinnar Dýralæknar Sandhólaferju fá frábærar þakkir en þau gáfu sigurvegara í hverri grein snyrtitösku fyrir hestinn ásamt fleiru.
Eftirtalin hrossaræktarbú styrktu hvert kvöld
Miðkot
Sunnuhvoll
Hjarðartún
Hestvit/Árbakki
IB-bílar
Gangmyllan
Margrétarhof
Rauðilækur
Sigurvegari í liðakeppninni eftir harða og spennandi keppni allt til loka var lið Málningar og óskum við þeim innilega til hamingu með árangurinn.
Sigurliðið fær farandgrip til varðveislu til eins árs.
Stigin í liðakeppninni eftir allar 5 greinarnar
nr 1 Málning 253
nr 2 Járnkarlinn 244,5 stig
nr 3 HealtCo/Carr&Day&Martin 213,5 stig
nr 4 Vélsmiðjan Magni 158 stig
nr 5 Hraunholt 92,5 stig
nr 6 Team Ströndin 82 stig
nr 7 M.J.Art 62,5 stig
Einnig þökkum við öllum þeim sjálfboðaliðum sem hjálpuðu til við að gera þetta mögulegt kærlega fyrir hjálpina.
Mjög gaman var að fylgjast með því hvað það komu margir áhorfendur á öll mót deildarinnar sem sýnir mikilvægi þessarar deildar og þökkum við þeim fyrir komuna og stuðninginn.
Þökkum Alendis.is að streyma lokamóti deildarinnar.
Stjórn Meistaradeild Ungmenna 2020 þakkar fyrir sig og hittumst hress og kát á næsta keppnistímabili.
Styttu haustið með EiðfaxaTV