Opið íþróttamót á Dalvík
Opið Íþróttamót Hrings verður haldið laugardaginn 21. maí á Hringsholtsvelli á Dalvík. Keppni hefst kl. 10.30.
„Keppt verður í eftirfarandi greinum.
Opinn flokkur og ungmennaflokkur.
Tölt
4-gangur
5-gangur
Gæðingaskeið
100m skeið (rafræn tímataka)
Barnaflokkur og unglingaflokkur
Tölt
4-gangur.
Skráningu skal lokið fyrir þriðjudaginn 17.maí kl. 20:00 á heimasíðu félagsins – (á forsíðu hægrameginn neðst í valstiku)
Skráningargjald í opinn flokk og ungmennaflokk er kr 2500 á fyrstu grein og kr 2000 á næstu greinar.
Skráningargjald í barna og unglingaflokk er kr. 1000 á grein.
Skráningargjald skal lagt inn á reikning félagsins 1177-26-175, kennitala 540890-1029, tilgreina þarf fyrir hvernig er verið að greiða ef annar en keppandi greiðir. Greiðslufrestur er til fimmtudags 19.maí kl 20:00
Athugið að ef ekki fæst næg þátttaka áskiljur mótanefnd sér rétt á því að fella keppnisgreinar niður,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd Hrings.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH