Opið mót á Sauðárkróki á laugardag

  • 18. ágúst 2011
  • Fréttir
Opið mót á Sauðárkróki á laugardag

Opið mót  á vegum Riddara Norðursins verður haldið á Fluguskeiði Sauðárkróki laugardaginn 20. ágúst.

„Keppt verður í Tölti og Skeiði.

Töltkeppnin fer fram á beinu brautinni, 4 ferðir. 1 ferð hægt tölt, 1 ferð hraðabreytingar, 1 ferð greitt tölt og seinasta ferðin er frjáls ferð.

Skeiðað verður út úr startboxum, 150 metra.

Skráning verður við brautarenda á laugardaginn milli klukkan 12 og 13.

Klukkan 14.00 Tölt

Klukkan 16.00 Skeið

Klukkan 17.00 Tölt úrslit, “ segir í tilkynningu frá félaginu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link