Sýnikennsla með Þorvaldi Árna

  • 6. október 2014
  • Fréttir
Á morgun 7. október kl 19:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði.

Hestamannafélagið Sörli og Þorvaldur Árni Þorvaldsson standa fyrir sýnikennslu á morgun, þriðjudaginn 7. október kl 19:00 að Sörlastöðum í Hafnarfirði. Verð kr. 1.000 og allir velkomnir.

Sýnikennslan markar upphaf námskeiðsins Þjálfað með Þorra þar sem Þorvaldur sýnir sínar aðferðir við þjálfun og uppbyggingu hrossa. Verkleg kennsla hefst síðan 14. október. Þrjú sæti eru enn laus á námskeiðið og áhugasamir eru beðnir um að skrá sig á http://skraning.sportfengur.com/SkraningNamskkort.aspx?mode=add

Kær kveðja
Brynja Björk Garðarsdóttir, rekstrarstjóri
Hestamannafélaginu Sörla

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link