Glódís Rún efst í fjórgangi (V1) ungmenna

  • 5. júlí 2020
  • Fréttir

Nú var að ljúka A-úrslitum í fjórgangi (V1) ungmennaflokki. Glódís Rún Sigurðardóttir stóð uppi sem sigurvegari með töluverðum yfirburðum og hlaut í einkunn 7,43. í öðru sæti varð Katla Sif Snorradóttir á Gusti frá Stykkishólmi með 7,20 í einkunn og í því þriðja varð Reykjavíkurmeistarinn í þessum flokki Ylfa Guðrún Svafarsdóttir á Prins frá Skúfslæk með 6,97 í einkunn.

Glódís Rún varð einnig samanlagður fjórgangssigurvegari í ungmennaflokki.

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Glódís Rún Sigurðardóttir / Glymjandi frá Íbishóli 7,43
2 Katla Sif Snorradóttir / Gustur frá Stykkishólmi 7,20
3 Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Prins frá Skúfslæk 6,97
4 Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir / Skálmöld frá Eystra-Fróðholti 6,93
5 Ólöf Helga Hilmarsdóttir / Katla frá Mörk 6,83
6 Svanhildur Guðbrandsdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri 6,63

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link