Úrslitum í A-flokknum lokið
Eyrún Ýr og Hrannar frá Flugumýri sigurvegarar A-flokks á LM2016. Einnig hlaut hún Gregersen-styttuna fyrir prúðmennsku og vel hirtan hest.
Með úrslitum í A-flokk lauk frábæru Landsmóti á Hólum í Hjaltadal. Mótið tókst vel og hefur vikan verið ein stór veisla, hvert glæsihrossið á fætur öðru bæði á kynbótabrautinni og gæðingavellinum.
,,Virkilega góð tilfinning og algjört spennufall,“ sagði Eyrún Ýr Pálsdóttir eftir sigurinn í A-flokk, fyrsta konan sem sigrar þennan flokk á Landsmóti, ,,Hrannar er algjör yfirburðahestur, ekki flókið. Heilsteyptur, geðgóður, auðveldur og bara frábær í alla staði.“
Eyrún Ýr hampaði einnig Gregersen-styttunni sem er veitt þeim knapa sem skarar frammúr í A- eða B-flokk fyrir snyrti- og prúðmennsku og vel hirtan hest.
Eiðfaxi óskar Eyrúnu Ýr og fjölskyldu innilega til hamingju með sigurinn.
Heildarniðurstöður úr úrslitum A-flokks:
1 Hrannar frá Flugumýri II / Eyrún Ýr Pálsdóttir 9,16
8 Þór frá Votumýri 2 / Atli Guðmundsson 8,65
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH