Íþróttamót Sörla – opið í fullorðinsflokkum
Íþróttamót Sörla verður haldið á Sörlavöllum 21.-22. maí nk. Mótið er opið í fullorðinsflokkum.
Skráning fer fram þriðjudaginn 17. maí milli kl. 18-20. Skráningargjald er 3.000 kr. á grein en 1.000 kr. fyrir polla. Sími í dómpalli er 5652922.
Flokkar í boði:
Barnaflokkur ( lokað )
• Tölt
• Fjórgangur
Unglingaflokkur ( lokað )
• Tölt
• Fjórgangur
• Fimmgangur
• Gæðingaskeið
• Fimi
Ungmennaflokkur ( lokað )
• Tölt
• Fjórgangur
• Fimmgangur
• Gæðingaskeið
• Fimi
• Tölt T2
Meistara, 1. og 2. flokkur ( Opið )
• Tölt
• Fjórgangur
• Fimmgangur
• Gæðingskeið
• Tölt T2
Auk þess er boðið upp á 100 m. skeið.
Mótanefnd áskilur sér rétt til þess að fella niður eða sameina flokka ef skráning er ekki næg.
Það verða allir að mæta með IS-númer hestsins.
Dagskrá og ráslistar liggja fyrir á fimmtudaginn á heimasíðu Sörla.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá mótanefnd Sörla
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH