Kostafákurinn Kiljan á Stóðhestadeginum
Kiljan frá Steinnesi mun koma fram á Stóðhestadegi Eiðfaxa sem haldin verður hátíðlegur á Brávöllum laugardaginn 28. apríl nk.
Kiljan á níunda vetri undan Kletti frá Hvammi og fyrstuverðlauna stólpahryssunni Kylju Kolfinnsdótturinn frá Steinnesi.
Kiljan er einn þeirra 22 hesta sem skorað hafa yfir 9 í fyrir kosti en hann hlaut 9,07 á sl. landsmóti er hann sigraði elsta flokk gæðinga með 8,78 í aðaleinkunn. Kiljan telst geðgóður með afbrigðum því hann hlaut 9,5 fyrir vilja og geðslag og fegurð í reið enda fasmikill fótaburðarklár sem skín af þjálni og fjöri. Hér er mikill vekringur á ferð með 9,5 fyrir skeið og 9 fyrir tölt, hægt tölt og brokk.
Kiljan verður til afnota á Feti eftir landsmót og kostar folatollurinn 170.000 kr. m.vsk. Upplýsingar gefur Anton Páll í síma 863-9644 eða í gegnum netfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH