Sérstök lágmörk fyrir klárhross til umræðu
Fagráð í hrossarækt hefur til umræðu að lækka lágmörk fyrir klárhross um tíu stig miðað við alhliðahross. Á fundi ráðsins í október var tekin fyrsta umræða um lágmarkseinkunnir kynbótahrossa fyrir Landsmót 2014. Auk þess að leggja til sérstök lágmörk fyrir klárhross er stefnt að því að hækka lágmörk á fjögurra og fimm vetra hrossum um fimm kommur frá síðasta móti.
Í máli Guðlaugs Antonssonar á aðalfundi Félags hrossabænda á föstudag kom fram að samkvæmt þessum lágmörkum hefðu 49 klárhross komist inn á Landsmót 2012 í stað 23.
Enn á eftir að taka ákvarðanir en búist er við að það verði gert á fundi Fagráðs í desember.
Eftirfarandi einkunnarlágmörk eru lögð til grundvallar í umræðum:
Stóðhestar
Alhliðahestar Klárhestar
7 vetra og eldri 8,35 8,25
6 vetra 8,30 8,20
5 vetra 8,20 8,10
4 vetra 8,05 7,95
Hryssur
Alhliðahryssur Klárhryssur
7 vetra og eldri 8,25 8,15
6 vetra 8,20 8,10
5 vetra 8,10 8,00
4 vetra 7,95 7,85
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH