Hrossaræktarbú Vesturlands
Þann 17. nóvember síðast liðinn var haustfundur Hrossaræktarsambands Vesturlands og var við það tækifæri veittar viðurkenningar til þeirra sem skarað hafa fram úr á árinu sem er að líða.
Hrossaræktarsambandið útnefndi Einhamar (Hjörleifur Jónsson og Sif Ólafsdóttir) sem hrossaræktarbú Vesturlands 2013, en Einhamar var einnig tilnefnt til ræktunarverðlauna ársins 2013
Fimm hross voru sýnd frá Einhamri 2 í ár en það eru þau Bylgja, Bára, Darri, Daggar og Dósent. Meðalaldur er 4,4 ár. Darri, Daggar og Dósent eru allir fjögurra vetra en Daggar var þriðji hæsti fjögra vetra hesturinn í ár með 8,19 í aðaleinkunn og Dósent fjórði með 8,17 í aðaleinkunn. Meðaltal aðaleinkunna hrossanna er 8,11.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH