Lágmörk lækkuð á FM
Dagana 2.-5. Júlí verður verður fjórðungsmót Austurlands haldið á Stekkhólma. Fagráð í hrossarækt gaf í upphafi árs út lágmörk fyrir kynbótahross inn á kynbótasýningu mótsins en fagráð hefur ákveðið að lækka lágmörkin í öllum flokkum um tíu stig og eru þau nú eftirfarandi:
Alhliðahross – Aðaleink
Stóðhestar 7 vetra og eldri – 8,15
Stóðhestar 6 vetra – 8,10
Stóðhestar 5 vetra – 8,00
Stóðhestar 4 vetra – 7,85
Hryssur 7 vetra og eldri – 8,05
Hryssur 6 vetra – 8,00
Hryssur 5 vetra – 7,90
Hryssur 4 vetra – 7,75
Klárhross / Aðaleink
Stóðhestar 7 vetra og eldri – 8,05
Stóðhestar 6 vetra – 8,00
Stóðhestar 5 vetra – 7,90
Stóðhestar 4 vetra – 7,75
Hryssur 7 vetra og eldri – 7,95
Hryssur 6 vetra – 7,90
Hryssur 5 vetra – 7,80
Hryssur 4 vetra – 7,65
Rétt til þátttöku í kynbótasýningu mótsins hafa hross sem náð hafa lágmörkum fyrir Fjórðungsmót og eru ræktuð eða í eigu félagsmanna þeirra hestamannafélaga sem eiga þáttökurétt á mótinu. Búið er að stofna sýninguna í WorldFeng og eigendur hrossanna verða að skrá þau inn í mótið fyrir 25. Júní. Þeir stóðhestar 5. vetra og eldri sem ekki hafa komist í kynbótadóm í vor vegna verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun og eru af þeim félagssvæðum sem eiga þátttökurétt á mótinu er heimilt að koma í fullnaðardóm á kynbótasýningu Fjórðungsmótsins.
Sýningargjöld í kynbótasýningu Fjórðungsmótsins verða innheimt samkvæmt gjaldskrá RML, eða 16.700 kr fyrir reiðdóm hjá þeim hrossum sem koma inn á lágmörkum og 21.700 kr fyrir fullnaðardóm stóðhesta sem ekki komust í dóm í vor vegna verkfalls.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH