Þjálfað í þúfum
Bærinn Stóra-Ásgeirsá blasir við sjónum ferðamanns þegar horft er yfir Víðidal af hlaðinu í Víðigerði. Þar búa Magnús Ásgeir Elíasson og Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir ásamt þremur börnum sínum og stunda hrossarækt og hafa komið sér upp skemmtilegu umhverfi til tamninga.
„Síðasta haust útbjuggum við rekstrarhring niður á engjar frá hesthúsinu. Þar er mjúkt land með brekkum og þúfum og hæðum. Við erum mjög ánægð með þessa framkvæmd sem býður upp á alhliða þjálfun þar sem reynir á snerpu, styrk og þol. Okkur finnst gaman að sjá hvað hrossin verða jákvæð, spennulaus og hafa gaman af að hlaupa frjáls.“
Viðtal við Magnús Ásgeir og Rannveigu Aðalbörgu má nálgast 1. tölublaði Eiðfaxa sem berst áskrifendum í vikunni. Hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH