Hestar sóttir heim

  • 24. janúar 2014
  • Fréttir
Icelandic Horse Expo 1. tölublaði Eiðfaxa

Icelandic Horse Expo er vikulöng hátíð sem verður haldin dagana 7.-12. apríl. Þar taka aðilar og félagasamtök í hestamennsku höndum saman ásamt ferðaþjónustunni við að halda alþjóðlegan, hestatengdan viðburð á Íslandi.

„Á þeim stöðum sem heimsóttir verða í ár er fjöldinn allur af frægum hrossum. Hestarnir eru í raun aðal gestgjafarnir og hlýtur það að vera mikil upplifun að sækja þá heim og komast í návígi við stjörnurnar,“ segir Hrafnkell Guðnason í viðtali við Eiðfaxa.

Kynning á Icelandic Horse Expo má nálgast í 1. tölublaði Eiðfaxa. Hægt er að panta áskrit í síma 511 6622 eða í gegnum tölvupóstfangið [email protected]. 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link