Vegleg peningaverðlaun fyrir sigurvegara í skeiði
WR Íþróttamót Harðar verður haldið dagana 30. apríl – 2. maí. Mótið hefst fimmtudagskvöldið 30. apríl á 100m, 150m og 250m skeiði. „Peningaverðlaun verða veitt fyrir 1.sæti í þeim greinum sem keppt verður í á fimmtu dagskvöldinu og vegleg verðlaun í boði fyrir 2-3.sæti,“ segir í tilkynningu frá Herði.
Skráning á mótið er hafin og lýkur henni á miðnætti 27.apríl.
Skráningargjöld eru eftirfarandi:
- Meistaraflokkur,1.-og 2.flokkur – 5000kr
- Ungmennaflokkur og unglingaflokkur – 4000kr
- Barnaflokkur – 3000kr
- Skeiðkappreiðar – 4000kr
Keppnisgreinar eru eftirfarandi en mótshaldarar áskilur sér rétt að sameina flokka ef skráningar séu dræmar:
- Fimmgangur F1 Meistaraflokkur
- Fimmgangur F2 1. flokkur
- Fimmgangur F2 2. flokkur
- Fimmgangur F2 Unglingaflokkur
- Fimmgangur F2 Ungmennaflokkur
- Fjórgangur V1 Meistaraflokkur
- Fjórgangur V2 1. flokkur
- Fjórgangur V2 2. flokkur
- Fjórgangur V2 Barnaflokkur
- Fjórgangur V2 Unglingaflokkur
- Fjórgangur V2 Ungmennaflokkur
- Gæðingaskeið 1. flokkur
- Gæðingaskeið 2. flokkur
- Gæðingaskeið Unglingaflokkur
- Gæðingaskeið Ungmennaflokkur
- Skeið 100m (flugskeið)
- Skeið 150m
- Skeið 250m
- Tölt T1 Meistaraflokkur
- Tölt T3 1. flokkur
- Tölt T3 2. flokkur
- Tölt T3 Barnaflokkur
- Tölt T3 Unglingaflokkur
- Tölt T3 Ungmennaflokkur
- Tölt T2 Meistaraflokkur
- Tölt T4 1. flokkur
- Tölt T4 2. flokkur
- Tölt T4 Unglingaflokkur
- Tölt T4 Ungmennaflokkur
- Tölt T7 Barnaflokkur
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH