Ráslisti morgundagsins
Þá liggur fyrir ráslisti fimmgangsins en keppnin hefst í Fákaseli á morgun fimmtudag kl. 20:00. Keppnin verður spennandi því knapar mæta með fantagóða hesta. Sigurvegarinn frá í fyrra, Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúli frá Oddhóli mæta og reyna verja titilinn. Árni Björn Pálsson varð í þriðja sæti í fyrra og mætir hann aftur með Odd frá Breiðholti í Flóa. Olil kemur með Álfadísarsoninn, Álffinn frá Syðri-Gegnishólum.
Einnig eru þarna nokkur keppnispör sem eru að stíga sín fyrstu skref. Ólafur Ásgeirsson mun mæta með Konsert frá Korpu en Konsert sigraði fimmganginn í Meistaradeildinni árið 2013 en þá var John K. Sigurjónsson knapi á honum. Þórarinn Ragnarsson mætir með Sæmund, yngri bróður Spuna og verður gaman að sjá hvernig þeim tekst til.
1 Sigurður Sigurðarson Freyþór frá Ásbrú
2 Bergur Jónsson Strokkur frá Syðri-Gegnishólum
3 Guðmar Þór Pétursson Gjöll frá Skíðbakka III
4 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Hrafnar frá Auðsholtshjáleigu
5 Elvar Þormarsson Undrun frá Velli II
6 Olil Amble Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum
7 Jakob Svavar Sigurðsson Ægir frá Efri-Hrepp
8 Ísólfur Líndal Þórisson Sólbjartur frá Flekkudal
9 Gústaf Ásgeir Hinriksson Geisli frá Svanavatni
10 Daníel Jónsson Þór frá Votumýri 2
11 Edda Rún Ragnarsdóttir Kinnskær frá Selfossi
12 Helga Una Björnsdóttir Fiðla frá Galtastöðum
13 Ólafur Ásgeirsson Konsert frá Korpu
14 John Sigurjónsson Hljómur frá Skálpastöðum
15 Guðmundur Björgvinsson Styrmir frá Skagaströnd
16 Hinrik Bragason Grafík frá Búlandi
17 Árni Björn Pálsson Oddur frá Breiðholti í Flóa
18 Reynir Örn Pálmason Greifi frá Holtsmúla 1
19 Þórarinn Ragnarsson Sæmundur frá Vesturkoti
20 Hulda Gústafsdóttir Birkir frá Vatni
21 Sigurbjörn Bárðarson Spói frá Litlu-Brekku
22 Sigurður Vignir Matthíasson Gormur frá Efri-Þverá
23 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Héðinn Skúli frá Oddhóli
24 Viðar Ingólfsson Sif frá Helgastöðum 2
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH