Víðidalstungurétt
Það styttist í eina stæstu stóðrétt landsins en föstudaginn 4. Október er stóði af Víðidalstunguheiði smalað til byggða.
Það er mögnuð sjón að sjá stóðið renna heim í sveitina síðdegis á föstudeginum og eru allir velkomnir að upplifa þessa stemmingu með heimamönnum.
Kaffisala verður í skemmunni á Kolugili milli kl 14 og 17. Í réttarskúrnum er svo hægt að fá kjötsúpu frá kl 17. Kl 20,30 er opið hús í reiðhöllinni á Gauksmýri en þar er verið að vígja nýja aðstöðu. Réttarstörf hefjast svo kl 10 laugardaginn 5. Október þegar stóðið verður rekið er til réttar. Í réttinni á laugardaginn verður uppboð á gæðingsefnum og happdrætti þar sem 1. Vinningur er folald ! Miði í happdrættinu fæst með því að versla veitingar í réttarskúrnum.Bændur á Stóru Ásgeirsá bjóða gesti velkomna í hesthúsið milli kl 15 og 17 á laugadag. Réttardansleikur í Víðihlíð á laugardagskvöld.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH