Langar þig í Landsliðið?

  • 17. janúar 2013
  • Fréttir

Portugalski reiðmaðurinn og reiðkennarinn Julio Borba verður aðal leiðbeinandi undirbúningshóps fyrir HM2013.

Undirbúningshópur fyrir HM hefur formlega hafið göngu sína. Fyrsta námskeið verður haldið í reiðhöll Eldhesta laugardaginn 19. janúar.

Undirbúningshópur fyrir HM úrtöku er formlega tekinn til starfa. Það er landsliðsnefnd LH sem stendur fyrir verkefninu og markmiðið er að gefa öllum sem áhuga hafa á að þreyta úrtöku fyrir HM2013 í Berlín tækifæri til að þjálfa sig undir handleiðslu reyndra kennara og gamalla landsliðhunda.

Hafliði Halldórsson, liðstjóri, sagði í kynningu á verkefninu að enginn væri skyldugur til að taka þátt í verkefninu, en það væri hins vegar öllum opið. Það sem felst í þessu er að hópurinn er ekki hugsaður sem þjálfunarbúðir fyrir „valið landslið“ heldur fremur þá sem langar að komast í landsliðið en skortir reynslu og kjark til að fara alla leið. Nokkrir knapar sem áður hafa átt sæti í landsliðinu hafa hins vegar skráð sig í hópinn og munu taka þátt í námskeiðum hópsins í vetur.

Landsliðsnefnd hefur fengið til liðs við sig þrjá valinkunna reiðkennara og keppnismenn, Julio Borba, sem hefur þjálfað nokkra knapa hér á landi um árabil, og þær Olil Amble og Rúnu Einarsdóttur, sem báðar eru þrautreyndir keppnismenn og reiðkennar. Báðar hafa verið í íslenska landsliðinu á HM oftar en einu sinni og báðar landað gulli.

Undirbúningshópnum er skipt í tvo hluta, A fullorðnir og U ungmenni. Þrjú reiðnámskeið verða haldin fyrir A hópinn í vetur og fjögur fyrir U hópinn. Öll fara fram í reiðhöll Eldhesta í Ölfusi og standa í tvo til þrjá daga. Fjórtán hafa þegar skráð sig í A hópinn en 17 í U hópinn. Það er því greinilega mikill áhugi meðal ungra knapa að komast í landsliðið en jafnframt ljóst að baráttan um sætin verða hörð, því þau eru aðeins fjögur. Það eru hins vegar sjö sæti í boði fyrir fullorðna og til viðbótar eru þrír heimsmeistarar frá því á HM2011 þegar búnir að ávinna sér sæti.

Bjarnleifur Bjarnleifsson, formaður landsliðsnefndar, segir að án efa megi margt að þessari frumraun finna. Hugsjónin sé sú að undirbúningur fyrir HM verði lengri og hnitmiðaðri í framtíðinni. Á þessum tímapunkti sé ljóst að aðeins þrír knapar séu í landsliðinu. Hins vegar sé ekki víst að neinn knapi í undirbúningshópnum komist í landsliðið.

„Einhversstaðar verðum við að byrja, ekki er betra að sitja með hendur í skauti. Við gerum okkur grein fyrir því að landsbyggðin er afskipt hvað varðar staðsetningu námskeiðanna. En það er á skagskránni að fara norður í vetur og halda þar námskeið og/eða fyrirlestra. Það hafa þó ekki verið settar niður neinar dagsetningar ennþá. En vonandi er þetta byrjunin á einhverju nýju. Ég er sannfærður um að þetta á eftir að auka áhuga og jafnframt möguleika fleiri knapa og hafa þannig góð áhrif á hestaíþróttina,“ segir Bjarnleifur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link