Eyjólfur Ísólfsson á Íslandi
Eyjólfur Ísólfsson varð Landsmóts- og Íslandsmeistari í tölti á Rás frá Ragnheiðarstöðum árið 2002.
Eyjólfur Ísólfsson, tamningameistari og reiðkennari, mun halda þriggja daga reiðnámskeið og sýnikennslu á Króki í Ásahreppi um helgina, 16.-18. janúar. Þetta er einstakt tækifæri fyrir íslenskt áhugafólk um tamningar og reiðmennsku, þar sem Eyjólfur starfar eð mestu erlendis.
Níu knapar taka þátt í námskeiðinu og stendur dagskráin frá því klukkan 08.15-08.30 á morgnana og til 16.00-17.25 síðdegis. Knaparnir eru með hesta á mismunandi tamninga- og þjálfunarstigum og mun Eyjólfur skoða hvern þátttakanda fyrir sig og leiðbeina síðan í framhaldi af því. Námskeiðið er opið fyrir áhorfendur, sem geta fylgst með allri dagskránni og tekið þátt í bóklegum tíma. Miðinn fyrir áhorfendur kostar 2500 krónur fyrir alla dagana. Sýnikennsla á laugardag innifalin.
Klukkan 16.00 á laugardag verður sérstök sýnikennsla fyrir áhorfendur þar sem „valdir kaflar“ verða teknir fyrir. Miðinn á sýnikennsluna kostar einnig kr. 2500.- Enginn „posi“ er á staðnum svo greiða þarf með reiðufé. Áhorfendum er bent á að taka með sér „norparann“ ef kalt er í veðri og menn ætla að sitja lengi, þar sem reiðhöllin er ekki upphituð.
Dagskrá reiðnámsskeiðsins er þessi:
Föstudagur:
08.15 – 08.55 1. knapi
09.00 – 09.40 2. knapi
09.45 – 10.25 3. knapi
10.30 – 11.10 4. knapi
11.15 – 11.55 5. knapi
12.00 – 12.45 Hádegishlé.
12.50 – 14.15 Bóklegt, sameiginlegt fyrir alla knapa og áhorfendur.
14.30 – 15.10 6. knapi
15.15 – 15.55 7. knapi
16.00 – 16.40 8. knapi
16.45 – 17.25 9. knapi
Laugardagur:
08.30 – 08.55 1. knapi
09.00 – 09.25 2. knapi
09.30 – 09.55 3. knapi
10.00 – 10.25 4. knapi
10.30 – 10.55 5. knapi
11.00 – 11.25 6. knapi
11.30 – 11.55 7. knapi
12.00 – 12.25 8. knapi
12.30 – 12.55 9. knapi
13.00 – 14.00 Hádegishlé.
14.00 Fundur, undirbúningur fyrir sýnikennslu.
16.00 Sýnikennsla, sem byggir á þatttöku nemanda á námskeiðinu.
Sunnudagur.
08.30 – 08.55 9. knapi
09.00 – 09.25 8. knapi
09.30 – 09.55 7. knapi
10.00 – 10.25 6. knapi
10.30 – 10.55 5. knapi
11.00 – 11.25 4. knapi
11.30 – 11.55 3. knapi
12.00 – 12.25 2. knapi
12.30 – 12.55 1. knapi
13.00 – 13.45 Hádegishlé.
13.45 – 16.00 Hver knapi fær tækifæri til að tala við kennarann (Coaching) ca. 15 min. pr. knapa.
16.00 Námskeiðslok.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH