Ráslisti kvöldsins birtur
Margir eru eflaust spenntir að sjá Daníel og Arion spreyta sig í gæðingafimi.
Þá nálgast gæðingafimin óðfluga og eru ráslistarnir tilbúnir. Margir nýjir hestar eru skráðir til leiks en sigurvegarinn frá því í fyrra, Olil Amble, teflir fram öðrum hesti Frama frá Ketilsstöðum. Frami er þó enginn nýgræðingur á keppnisvellinum en hann hefur gert það vel með eiganda sínum Elinu Holst. Frami var einnig í topp tíu í gæðingafiminni í fyrra en þá var Bergur Jónsson á honum. Af þeim tíu sem komust í úrslit í fyrra eru einungis tvö pör skráð til leiks en það eru þaur Sylvía Sigurbjörnsdóttir og Héðinn Skúli frá Oddhóli (3. sæti) og Eyrún Ýr Pálsdóttir og Kjarval frá Blönduósi (6. sæti)
Daníel Jónsson mætir á stólpagæðingnum Arion frá Eystra-Fróðholti en gaman verður að sjá hvernig þeim tekst til á morgun. Arion og Daníel mættu í töltið í fyrra og gerðu vel. Bergur Jónsson teflir fram Kötlu frá Ketilsstöðum en þau voru í B úrslitum í fjórgangnum. Hástökkvarar fjórgangsins mæta einnig þau Þórdís Erla Gunnarsdóttir og Sproti frá Enni. Það er greinilegt að það stefnir í hörku keppni og verður spennandi að sjá hverjir ná topp fimm þetta árið.
Við viljum minna á sýnikennsluna sem mun verða kl 18:30 áður en að keppni hefst en þar munu þeir Anton Páll Níelsson og Ólafur Andri Guðmundsson leiða okkur gegnum gæðingafimina og útskýra um hvað hún snýst.
Húsið opnar kl. 17:30 og hvetjum við fólk til að mæta stundvíslega. Hlaðborðið verður á sínum stað í Fákaseli og alveg tilvalið að mæta snemma og fá sér gott að borða fyrir keppni.
Keppnin verður sýnd í beinni útstendingu á Stöð2 Sport en auk þess er hægt að sjá beina útsendingu á heimasíðu Meistaradeildar www.meistaradeild.is gegn vægri greiðslu.
Hér er ráslistinn
- Ragnar Tómasson – Sleipnir frá Árnanesi
- Ísólfur Líndal Þórisson -Kristófer frá Hjaltastaðahvammi
- Eyrún Ýr Pálsdóttir – Kjarval frá Blönduósi
- Lena Zielenski- Melkorka frá Hárlaugsstöðum 2
- Hinrik Bragason – Geisli frá Svanavatni
- Guðmundur Björgvins – Kilja frá Grindavík
- Guðmar Þór Pétursson – Katla frá Kommu
- Sylvía Sigurbjörnsdóttir – Héðinn Skúli frá Oddhóli
- Bergur Jónsson – Katla frá Ketilsstöðum
- Sigurbjörn Bárðarson – Jarl frá Miðfossum
- Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir – Spretta frá Gunnarsstöðum
- Helga Una Björnsdóttir – Vág frá Höfðabakka
- Hulda Gústafsdóttir – Kiljan frá Holtsmúla 1
- Þórdís Erla Gunnarsdóttir – Sproti frá Enni
- Reynir Örn Pálmasson – Röst frá Lækjamóti
- Daníel Jónsson – Arion frá Eystra-Fróðholti
- Sigurður Sigurðarson – Dreyri frá Hjaltasöðum
- Viðar Ingólfsson – Dáð frá Jaðri
- John Kristinn Sigurjónsson – Sigríður frá Feti
- Árni Björn Pálsson – Skíma frá Kvistum
- Olil Amble – Frami frá Ketilsstöðum
- Jakob S Sigurðsson – Gloría frá Skúfslæk
- Þórarinn Ragnarsson – Hrísey frá Langholtsparti
- Sigurður Vignir Matthíasson – Roði frá Margrétarhofi
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH