Ófeigsbikarinn í Flugumýri II
Hrannar frá Flugumýri II er hæst dæmda kynbótahross ársins með 8,85 í aðaleinkunn, knapi Þorvaldur Árni Þorvaldsson.
Ófeigsbikarinn, sem veittur er hrossaræktarbúi ársins í Skagafirði, fór ekki langt frá uppruna sínum í þetta skiptið. Bikarinn heitir eftir hinum fræga stóðhesti Ófeigi 882 frá Flugumýri og féll að þessu sinni í skaut þeim Páli Bjarka Pálssyni og Eyrúnu Önnu Sigurðardóttur á Flugumýri II. Frá Flugmýri II er meðal annars hæst dæmda kynbótahross ársins, Hrannar frá Flugmýri II, sem hlaut 8,85 á Selfossi í vor. Knapi Þorvaldur Árni Þorvaldsson.
Hrannar er að margra mati sá stóðhestur sem kemst næst því að samræmast hinu opinbera ræktunartakmarki. Hann er með 8,39 fyrir sköpulag, þar af 9,0 fyrir samræmi og hófa, og 9,16 fyrir kosti, þar af 9,5 fyrir tölt, brokk og vilja, og 9,0 fyrir skeið, fegurð og hægt tölt. Óhætt er að segja að samkvæmt þessum einkunnum falli hann hann undir þá skilgreiningu að vera „klárhestur með skeiði“, eins og sumir vilja meina að sé hið verðuga ræktunartakmark.
Á uppskerufagnaði hestamanna í Skagafirði sem haldinn var á dögunum voru einnig veitt fleiri verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í hrossarækt og reiðmennsku:
Kynbótaknapi Skagafjarðar (Kraftsbikarinn) er Gísli Gíslason, en hann var einnig var kjörinn kynbótaknapi ársins af LH.
Hæstu kynbótahross í hverjum flokki:
4 v. stóðhestar:
Hraunar frá Vatnsleysu
5 v. stóðhestar:
Lord frá Vatnsleysu
6 v. stóðhestar:
Hrannar frá Flugumýri II (Sörlabikarinn)
7 v. og eldri stóðhestar:
Seiður frá Flugumýri II
4 v. hryssur:
Stúlka frá Þúfum
5 v. hryssur:
Storð frá Hólum
6 v. hryssur:
Ferna frá Hólum
7 v. hryssur:
Blika frá Enni
Hestaíþróttamenn Skagafjarðar eru:
Barnaflokkur:
Guðmar Freyr Magnússon
Unglingaflokkur:
Þórdís Inga Pálsdóttir
Ungmennaflokkur:
Sigurður Rúnar Pálsson
Fullorðinsflokkur:
Þórarinn Eymundsson
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH